top of page

Félag skógabænda Austurlandi

Stjórn á Austurlandi

Kjörin á aðalfundi janúar 2022

Skráðir félagar: 137

Fjöldi jarða: 84

Fjöldi Sveitafélaga: 7 

október 2018

Skógarafurðir á Austurlandi

FSA- Afurðir
Maríanna_edited.png

Maríanna Jóhannsdóttir

Formaður FSA

Snjóholti

Þórhalla Sigmundsdóttir.jpg

Þórhalla Sigmundsdóttir

Gjaldkeri

Birnufelli

Glókollur á grænni grein á Íslandi.jpg

Vigdís Sveinbjörnsdóttir

Ritar

Egilsstöðum

Halldór_Hjartarstöðum.png

Halldór Sigurðsson

Meðstjórnandi

Hjartarstöðum

Glókollur á grænni grein á Íslandi.jpg

Þorsteinn Pétursson

Meðstjórnandi

Víðivallagerði

Um Félag skógarbænda á Austurlandi

Félagið vann að framgangi lagasetningar, sem byggði á þeirri reynslu sem fékkst við Fljótsdalsáætlun og var í raun öflugur þrýstihópur sem vann að því markmiði, sem náðist með stofnun Héraðsskóga .

Í upphafi var mörkuð sú stefna að staðið skyldi faglega að plöntuframleiðslu og að verkefnið notaði einungis gæðaplöntur. Því var Gróðrarstöðin Barri hf. stofnuð, en  Félag skógarbænda á Héraði á þar rúmleg þriðjung.  Nú starfar Barri hf. í nýrri aðstöðu sem byggð var upp á Valgerðarstöðum í Fellum og var formlega tekin í notkun 12. mars síðastliðinn. Þar sem er  glæsilegasta  aðstaða landsins til  plöntuframleiðslu, með frystigeymslum fyrir skógarplöntur.

Um miðjan desember var haldinn jólamarkaður hjá Barra hf. þar sem skógarbændur buðu jólatré til sölu, handverksfólk mætti með sína framleiðslu, boðið upp á lifandi tónlist að ógleymdri hangikjötskeppni, keppt var um sæmdarheitið “Kjötkrókur Austurlands” þar sem gæði hangikjöts frá 10 einstaklingum voru lögð í dóm gesta sem voru fjölmargir (nánar á heimasíðu Barra h.f – barri.is)

Skógarbændur á Héraði eru stoltir af því að hafa verið í fararbroddi bændaskógræktar frá stofnun félagsins og vonandi getum við haldið áfram að bera uppi merki skógræktar í atvinnuskyni á Íslandi.

Í samstarfi við Skógrækt ríkisins og Héraðs og austurlandsskóga hefur,  Félag skógarbænda á Héraði staðið fyrir Skógardeginum mikla sem, nú verður haldinn í Mörkinni á Hallormsstað, fjórða árið í röð  og bjóðum við alla 
velkomna til okkar21.júní n.k.

Eftir að Landsamtök skógareigenda vöru stofnuð, höfum við gert okkur far um að sækja alla aðalfundi LSE, með sem flestum félögum. Í þessum ferðum okkar förum við gjarnan einhverja útúrdúra, skoðum landið okkar, skemmtum  okkur og eflum félagsandann.

Við gerum okkur far um að sjá jákvæðu hliðarnar á tilverunni og vonandi verður svo áfram.

F.h. stjórnar Félags Skógarbænda á Héraði.
Þorsteinn Pétursson  Víðivallagerði Fljótsdal.

Lög félag skógarbænda á Austurlandi

                                               Lög Félags skógarbænda á Austurlandi
                                                                     1.    grein
  Félagið heitir Félag skógarbænda á Austurlandi, skammstafað FSA. Félagssvæðið er Austurland. Heimili þess og varnarþing er á  félagssvæði FSA.
                                                                     2.    grein
  Tilgangur félagsins er:
•    að efla nytjaskógrækt á Austurlandi sem búgrein og gæta hagsmuna jarðeigenda og ábúenda sem eru í félaginu og stunda nytjaskógrækt
•    að veita félagsmönnum fræðslu og upplýsingar um sem flesta þætti nytjaskógræktar og nýjungar sem verða á því sviði
•    að kynna félagsmönnum það sem gagn má hafa af trjárækt, auk timburframleiðslu, sem aukið gætu þá atvinnu sem skóglendi og vistkerfi þess veitir.
                                                                      3.    grein
  Félagar geta þeir orðið sem stunda nytjaskógrækt sem búgrein á lögbýli. Greitt er eitt árgjald á hvert býli til félagsins og félagar greiða annað árgjald. Árgjöld eru ákveðin á aðalfundi. Skuldlaus félagi hefur atkvæðisrétt.
                                                                      4.    grein
  Félagsfundir eru haldnir þegar stjórn þykir ástæða til, eða þegar fimmti hluti fullgildra félaga æskir þess. Þeir skulu boðaðir með 2ja sólarhringa fyrirvara minnst og eru löglegir sé löglega til þeirra boðað.
                                                                      5.    grein
  Aðalfundur er æðsta vald félagsins. Með viku fyrirvara fyrir lok apríl ár hvert  boðar stjórn aðalfund með rafrænum hætti og telst hann lögmætur sé hann löglega boðaður.
Á dagskrá fundarins eru þessir liðir:
1.    Fundur settur. Lögmæti fundar kannað.
2.    Skýrsla stjórnar frá síðasta aðalfundi.
3.    Endurskoðaðir ársreikningar félagsins lagðir fram og afgreiddir.
4.    Inntaka nýrra félaga.
5.    Félagsgjöld ársins ákveðin.
6.    Lagabreytingar, hafi komið fram formlegar tillögur þar um og kynntar með fundarboði.
7.    Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga.
8.    Tilnefna aðal- og varamann til setu í stjórn LSE til eins árs.
9.    Önnur mál.
10.    Fundi slitið.
                                                                      6.    grein
  Stjórn félagsins skipa 5 menn og 2 til vara.Kosið er til hennar úr hópi félaga. Hún skiptir sjálf með sér verkum. Stjórnin fer með framkvæmdastjórn félagsins milli aðalfunda.
                                                                       7.    grein
  Stjórn FSA er heimilt að leggja fyrir aðalfund tillögu að útnefningu heiðursfélaga í Félagi skógarbænda á Austurlandi. Þeir greiða ekki árgjald og mega ekki vera fleiri en 3 samtímis.
                                                                       8.    grein
  Lögum þessum má aðeins breyta á lögmætum aðalfundi og þarf til þess 2/3 hluta greiddra atkvæða.

(Lög félagsins eftir samþykktar breytingar á aðalfundi 2016)
 

Merki félag skógarbænda á Austurlandi

Litirnir í merkinu eru pantone 343,356,368

bottom of page