top of page

Hirðum um skógana!


„Skógrækt er ekkert öðruvísi en hefðbundinn landbúnaður, eftir því sem þú sinnir honum meira því betri verður hann,“ segir Lárus Heiðarsson í myndbandinu. Hann er bæði skógarbóndi á Droplaugarstöðum í Fljótsdal og skógræktarráðgjafi hjá Skógræktinni. Þar sinnir hann þjónustu við skógarbændur á Austurlandi en einnig margvíslegri ráðgjöf og þróunarstarfi, ekki síst á sviði skógarumhirðu.

Lárus segir að sé ætlunin að rækta gæðatimbur verði að sinna skóginum snemma með tvítoppaklippingu og snyrtingu. Lárus er skógfræðingur að mennt og skógurinn hans ber bæði vott um kunnáttu og metnað við nytjaskógrækt á íslenskri bújörð.

bottom of page