top of page

Skógarhandverk um land allt

Margt smátt gerir eitt stór

Á sumrin vaxa skógar á Íslandi og dafna. Að vetri hvíla þeir sig til næsta vors. Skógarbændur fá að njóta alls þess sem skógurinn hefur upp á að bjóða. Margir þeirra nýta efnivið úr skógarauðlindinni til ýmissa smíða. Íslensk skógartré má nota til skrauts og / eða gagns. Fjöldi hagleiksmanna um allt land nýta efnivið úr íslenskum skógum. Hér á eftir verður kíkt í kaffi á fimm stöðum á landinu.

SXLLM​​

​Á Norðurlandi búa Benjamín og Halla í Víðigerði, rétt innan við Hrafnagil í Eyjafjarðarsveit. Skógur er þeirra líf og yndi og má glöggt greina það á heimili þeirra. Vegna fjölda eftirspurna eftir vörum sem þau hanna og smíða, ákváðu þau nýverið að stofna fjölskyldufyrirtækið Lupus Luna. Nú þegar eru margar vörur til sölu í heimabyggð og alltaf einhverjar vörur í þróun. Lupus Luna notar eingöngu smíðavið úr skógum í nágrenninu.

Benjamín og Halla

Á Austurlandi hefur Einar Halldórsson farið út í að smíða eitt og annað eftir að hann hætti að vinna. Hann kom sér upp lítill aðstöðu og smíðar allt sem honum dettur í hug. Nú vinnur hann mestmegnis leikföng, aðallega úr lerki sem hann fær á Hallormsstað, en einnig hefur hann handleikið öspina aðeins. Hann fullþurrkar viðinn heimafyrir áður en hann hefst handa. Leikföngin eru 100% náttúruvæn því eftir pússun eru þau olíusoðin í grænmetisolíu. Auk leikfanganna hefur hann gert kolla, skammel, bakstóla, laufabrauðspressur, þunn morungverðarbretti, spaða, smjörhnífa svo fátt eitt sé nefnt. Hann vill hann benda á að tími sé kominn til að skipta út plastinu og nota það sem náttúran gefur sem er mun fallegra og endist og endist.

Einar Halldórsson

Á Vesturlandi er jörðin Stapasel í Stafholtstungum í Norðurárdal. Daníel og Inga eru þar skógarbændur í Vesturlandsskógum og hafa einnig verið með íslenskar varphænur og býflugur. Á jörðinni vex mikið birki, sem þarf að grisja til að komast um skóginn. Á milli bústarfa dunda þau sér við að búa til fallega servíettuhringi úr því birki, sem leggst til við grisjunina.

Daníel og Inga

Á Vestfjörðum á jörðinni Hænuvík í Rauðasandhreppi er lífrænt sauðfjárbú. Hjónin á staðnum, Guðjón Bjarnason og María Ólafsdóttir eru einnig með ferðaþjónustu. Guðjón hefur verið ötull við að vinna muni úr viði sem rekur á strendur við bæinn en ekki síður úr íslenskum efnivið svo sem birki og lerki. Nánast allar viðartegundir koma til greina en þær þurfa að vera vel þurrar. Hann hefur mikið dálæti á gullregni en hefur ekki enn áskotnast það

Guðjón og aðstoðarmaður hanns

Á Suðurlandi er fyrir að hitta Úlfar Sveinbjörnsson trételgja með meiru. Hann býr á Selfossi en leggur gjarnan leið sína á Flúðir til koleika síns Guðmundar Magnússonar til að nálgast efnivið í verk sín. Úlfar kann vel að meta íslenskt birki rétt eins og flest hans viðfangsefni en Úlfar er þekktur fyrir hárnákvæman tálgun á fuglum úr íslenskri fánu.

Úlfar

bottom of page