top of page

LSE sameinast BÍ


Landssamtök skógareigenda (LSE) héldu aðalfund á laugardaginn var (15.maí) í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi þar sem Félag skógarbænda á Vesturlandi voru gestgjafar. Það hefur ekki gengið þrautalaust að dagsetja fundartíma og form fundarins sökum sóttvarna. Ólíkt fyrri árum, þar sem hefðin var að aðalfundur var opinn öllum félagsmönnum með árshátíð og gjarnan málþingi, var nú fulltrúafundur. Í fyrra var fundinum aflýst en nú sendi hvert aðildarfélagfélag LSE ákveðinn fjölda fulltrúa á fundarins. Um þessar mundir eru skógarbændur í óðaönn að gróðursetja og auk þess stendur yfir sauðburður á mörgum búum, en margir skógarbændur stunda fjölbreyttan búskap. Það var því kannski ekki að furða að töluvert færri fulltrúar sátu fundinn en sóttvarnarreglur leyfðu. Fundinum var streymt á streymisveitu YouTube og gátu skógarbændur fylgst með því sem ákveðið var á fundinum.


Stærsta frétt fundarins er vafalítið samstaða skógarbænda um sameiningu við Bændasamtök Íslands. Í aðdraganda aðalfundarins voru haldnir kynningarfundir um kosti og galla sameiningar fyrir stjórnir sem og félagsmenn aðildarféaga LSE. Flestir fundir voru fjarfundir. Gunnar Þorgeirsson, formaður BÍ, var eini gestur fundarins og fór hann skipulega yfir málin á laugardaginn.


Margar tillögur snéru að sameiningarmálunum en auk þess var lögð aukin áhersla á að málaflokkur skógræktar yrði færður undir ráðuneyti landbúnaðar. Skógrækt hefur marga snertifleti við mörg ráðuneyti en þar sem skógrækt er vissulega landbúnaður liggur beinast við að málum skógarbænda sé sinnt frá ráðuneyti landbúnaðar. Skýrsla viðarnytja að nafni „Horft fram á við“ var kynnt á fundinum en í henni er margt áhugavert að sjá fyrir alla bændur. Möguleikar skógræktar felast í mörgu öðru en einungis gagnviðarframleiðslu. Skógar eru líka afkastamikil og náttúrleg aðferð kolefnisbindingar. Kynnt var staða Kolefnisbrúarinnar, félag BÍ og LSE, og kynntar lausnir og tækifæri sem felast í kolefnisbindingu með skógrækt.




Hér að neðan eru tillögur frá fundinum sem allar voru samþykktar.


Tillögur fyrir aðalfund LSE í Borgarnesi 2021


1. Sameining við Bændasamtök Íslands

„Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda, haldinn í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi 15.maí 2021, leggur til að LSE sameinist Bændasamtökum Íslands, án slita LSE. Sameiningin taki gildi 1. júlí 2021. Nýjar samþykktir fyrir LSE með takmarkaða starfsemi liggja til grundvallar tillögunni ásamt fylgigögnum sem varða nýtt félagskerfi.“

Fylgigögn:

1. Nýjar samþykktir LSE

2. Tillaga um nýtt félagskerfi ásamt fylgigögnum sem samþykkt var á Búnaðarþingi 2021.

3. Tillaga um félagsgjöld miðað við nýtt félagskerfi, samþykkt á Búnaðarþingi 2021

4. Tillaga um fjárhagsáætlun miðað við nýtt félagskerfi, samþykkt á Búnaðarþingi 2021

5. Drög að nýjum samþykktum Bændasamtaka Íslands sem lögð verða fyrir til samþykktar á


Aukabúnaðarþingi 10. júní 2021


Tillaga lögð fram af stjórn LSE


2. Skipting fjármagns

„Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda, haldinn í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi 15.maí 2021, leggur til að núverandi fjármagni LSE verði ánafnað í tvo jafna liði í megin atriðum. Annars vegar í tengslum við Kolefnisbrúnna og hins vegar að efla búgreinardeild skógarbænda innan BÍ og kynna frekar fyrir núverandi félagsmönnum LSE“.


Greinargerð:

Mörg uppbyggileg og krefjandi verkefni eru nú þegar í vinnslu hjá LSE og fleiri er enn etir að vinna. Með tilkomu Kolefnisbrúarinnar mun mörg brýn skógræktarverkefni færast þangað í einhverri mynd. Verkefni búgreinardeildar skógarbænda mun vafalítið eiga margt sammerkt með verkefnum Kolefnisbrúarinnar en önnur verða sérhæfðari en ekki síður brýn. Vafalítið er þó eitt brýnna en önnur, en það er að efla bændur og landeigendur í skógrækt enn frekar til samtöðu og góðra verka. Þess vegna er lagt til að fjármagn verði notað með sem bestum og jöfnustum hætti í málaflokka Kolefnisbrúarinnar og kynningarstarf fyrir búgreinardeild skógarbænda.



Tillaga lögð fram af stjórn LSE


3. Sameining við Bændasamtök Íslands, seta stjórnar

„Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda, haldinn í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi 15.maí 2021, leggur til að núverandi stjórn og varastjórn LSE sitji óbreytt til Búgreinaþings 2022. Óháð lögum LSE.“


Greinargerð:

Í lögum LSE má stjórnarmaður sitja í stjórn í 8 ár eða skemur. Sitjandi formaður hefur setið í 8 ár í stjórn og hefði, við eyðilegar kringumstæðum, átt að stíga til hliðar á þessum fundi. Stjórn Bændasamtakanna hefur óskað eftir því að sitjandi stjórnir búgreina, sem vilja sameinast Bændasamtökunum, sitji a.m.k. til búnaðaþings 2022 til aðlögunar við breytt kerfi.“


Tillaga lögð fram af stjórn LSE


4. Árgjöld

,,Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda, haldinn í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi 15.maí 2021, leggur til að ekki verði innheimt félagsgjöld til LSE þetta árið (2021).


Greinargerð

Þess í stað munu Bændasamtökin innheimta hálft árgjald um mitt þetta ár þar sem núverandi félögum í LSE er boðið að gerast félagsmenn Bændasamtaka Íslands.


Tillaga lögð fram af stjórn LSE


5. Laun stjórnar

„Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda, haldinn í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi 15.maí 2021, leggur til að laun stjórnar verði með sama móti og fyrra ár, þ.e. taki mið af kjarasamningum FÍN og BHM; launaflokki FÍN25. Þannig verði árslaun formanns 50% af 100% mánaðarlaunum sem 1. október 2019 nema 684.056 og að laun almenns stjórnarmanns verði 35% af launum formanns og laun gjaldkera 40% af launum formanns. Árslaun formanns verða þá 342.028, laun gjaldkera 136.811 og laun almenns stjórnarmanns 119.710 kr. Miða skal við laun 1. janúar ár hvert. Síðan verði greiddir dagpeningar fyrir fundarsetu og nefndarstörf.


Tillaga lögð fram af stjórn LSE


6. Kolefnisútreikningur samningsbundinna skógræktarjarða

„Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda, haldinn í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi 15.maí 2021, vill hvetja Skógræktina til að gefa upp kolefnisbindingu samningsbundinna jarða í skógrækt, óski skógarbóndi eftir því.“


Greinargerð:

Loftslagsmál eru í brennidepli nú um stundir. Bændur eru hvattir og jafnvel krafðir um að gefa upp losun kolefnisígilda á sínum bújörðum. Þá er mikilvægt að binding viðkomandi bújarða sé höfð með sem mótvægi við losun við þá útreikninga. Skógræktin er þjónustustofnun fyrir skógarbændur og hafa í sínum fórum gott aðgengi upplýsinga um gróðursetningar og jafnvel raunbindingu í einhverjum tilvika. Með útreikningi, byggðum á trjátegundum, landslagsgerðum og aldri gróðursettra plantna má áætla bindingu. Þess er því farið á leit við Skógræktina að vera jákvæður hvati fyrir samningsbundna skógareigendur að gefa upp bæði upp áætlun um þegar bundið kolefni í landinu og einnig mögulega lokabindingu, ef miðað er við t.d. 50 ára lotu.


Tillaga lögð fram af: Guðmundur Aðalsteinsson (FSA)


7. Framseljanlegar kolefniseiningar

„Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda, haldinn í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi 15.maí 2021,, leitar til Umhverfisráðuneytis eftir því að skógarbændur geti framselt kolefniseiningar úr sínum skógum.“


Greinargerð:

Þess er farið á leit við Umhverfisráðuneytið að það gefi skógarbændum leyfi til að selja kolefnisbindingu úr sínum skógum, óháð aldri skóganna, óski þeir þess. Kolefnisbinding sem fellur til innan bændaskógræktar verður fyrst og fremst nýtt til að kolefnisjafna búrekstur bænda eða til sölu. Enda kemur skýrt fram í skógræktarsamningum að skógurinn sé eign bóndans. Þannig aukast tekjur þeirra sem vinna að skógræktinni, sem ætti að efla búsetu í dreifbýli jafnframt því að mynda skattstofn fyrir ríkið.


Tillaga lögð fram af stjórn FSA


8. Flutningur milli ráðuneyta

„Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda, haldinn í Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarnesi 15. maí 2021, leggur þunga áherslu á að bændaskógrækt verði færð frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis


Greinargerð:

Bændaskógrækt er eins og hver önnur grein landbúnaðar og því eðlilegt að hún sé undir Landbúnaðarráðuneytinu enda verða skógarbændur væntanlega aðilar að Bændasamtökum Íslands á yfirstandandi aðalfundi. Þannig skapast forsendur til þess að bændaskógrækt verði fjármögnuð í gegnum búvörusamning sem ætti að þýða öruggari fjármögnum til greinarinnar. Það er mjög mikilvægt að við uppbyggingu skógarauðlindar sé trygg fjármögnun til lengri tíma.

Tillaga lögð fram af stjórn FSA


9. Fjárhagsáætlun

Lögð fram óbreytt og er á sérblaði með aðalfundargerð.

Tillaga lögð fram af stjórn LSE Lagt til fjárhagsnefndar (1 fulltrúi úr hverju félagi)





Dagskrá

10:00 Setning fundar

10:15 Skýrsla stjórnar 2021 (Jóhann Gísli Jóhannsson, formaður LSE)

10:30 Ársreikningur 2020 (Rúnar Vífilsson, gjaldkeri LSE) (Ársreikningur 2019)

10:45 Umræður um skýrslu stjórnar

11:00 Megin mál fundarins -Sameining við Bændasamtök Íslands (Gunnar Þprgeirsson formaður BÍ))


Tillögur fundarins lagðar fram (sjá neðar)

11:15

12:15 Hádegishlé

13:00 Aðsendar tillögur (sjá neðar)

13:30 Tillögur afgreiddar

15:00 Kaffihlé

15:20 Kynning á skýrslu Skógarfangs- Horft fram á við (Björn B. Jónsson)*

15:30 Umræður

15:40 Kynning á Kolefnisbrúnni (Hlynur Gauti Sigurðsson)

15:50 Umræður

16:00 Áætluð fundarlok



Hjálamklettur



Myndir af vettvangi (HGS)




bottom of page