Sól*Kol -Upptaka
- Skógarbændur
- May 9
- 2 min read
Updated: May 11
Nánar um málþingið
Dagsrká
Björn Bjarndal Jónsson, formaður Félags skógarbænda á Suðurlandi – Fundarstjórn
OPNUN MÁLÞINGS
Sigurjón Örn Þórðarson, Stjórnarformaður Sólheima >Bíður gesti velkomna
Jóhann Páll Jóhannsson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra >Ávarp
Hlynur Gauti Sigurðsson, Framkvæmdastjóri Kolefnisbrúar >Markmið Kolefnisbrúar
KOLEFNISMARKAÐIR
VIDEO, Saga skógræktar á Íslandi
Gunnar Sveinn Magnússon, Deloitte > Fyrirkomulag og tækifæri kolefnismarkaða
Rakel Eva Sævarsdóttir ,Trail – sjálfbærniráðgjöf > Samtal við stjórnenda fyrirtækja
Guðmundur Sigbergsson, ICR- Loftslagsskrá > Loftslagsskrá
Þröstur Eysteinsson, Frv. skógaræktarartjóri > Loftslagsbreytingar og skógrækt
FAGLEG SKÓGRÆKT
VIDEO, ORB Klárt
Páll Sigurðsson, Skipulagsfulltrúi LOGS > Rækt í sátt við land og þjóð
Helena MArta Stefánsdóttir, Skógvistfræðingur hjá LOGS > Líffjölbreytileiki í skógrækt
Björgvin Eggertsson, Brautarstjóri hjá Garðyrkjuskólanum /FSU > Tré eru meira en kolefni
Eiður Eyþórsson, Ræktunarstjóri hjá Öli, gróðarstöð> Endurreisn skógræktar Sólheima
LOFTSLEG VEGFERÐ
VIDEO, Bændur, boðnir og búnir
Magnús Salberg Óskarsson, Samskip > Ábyrg fyrirtæki
Ásmundur Skeggjason, Skógálfar > Reynsla af skógrækt og sala kolefniseininga
Ragnheiður Björk Halldórsdóttir, Bændasamtök Íslands > Bændaskógar
Hreinn Óskarsson, Formaður Skógræktarfélags Árnesinga > Samantekt málþings
Valgeir Backman, Félagsmálafulltrúi Sólheima > Viðurkenningar
Málþingið Sól*Kol fjallar um loftslagsmál og mögulega hagkvæmustu og notadrýgstu aðgerð sem Íslendingar eiga í þágu loftslagsins, þ.e. að binda kolefni úr andrúmsloftinu með skógrækt.
Líklega er þetta fyrsta málþing sem fjallar um markaði kolefniseininga. Á því verður reynt að gera þessu viðskiptamódeli skil þannig að bæði framleiðendur og kaupendur skilji gangverkið. Sérfræðingar stofnanna, ráðuneyta og fyrirtækja fara yfir málin og segja frá.
Skógarbændur hafa í áratugi viljað þróa vottunarhæfa leið til framleiðslu og sölu kolefniseininga. Þegar Skógræktin (nú Land og skógur) bjó til kröfusettið Skógarkolefni tók þessi málaflokkur kipp hér á landi.
Kolefnisbrúin er fyrirtæki í eigu Bændasamtaka Íslands og Félaga skógarbænda á landsvísu. Megin markmið Kolefnisbrúar er að virkja markað með sölu kolefnieininga, einkum í skógrækt.
Sú nálgun sem Kolefnisbrúin hefur á kolefnismarkaðinn gengur út þrjú megin stef.
Styrkja búsetu og landbúnað um land allt.
Skógrækt eflir landbúnað, í tilliti heilnæmis og nægs framboðs, og er lykill að búsetu í landinu og undirstaða sjálfbærni þjóðar.
Efla og þróa skógarauðlind Íslendinga.
Grettistaki verður lyft í timburöryggi þjóðarinnar og hringrásarhagkerfið stóreflist. Tækifæri til efldar útivistar myndu að sama skapi stóraukast og sveitarfélög myndu hagnast.
Treysta gagnsemi og gegnsæi loftslagsaðgerða.
Viðurkennd vottun, með öllum þeim kostum og göllum sem þeim fylgja, verður að gera skil þannig að samfélagið samþykki. Vottun er flókin og því er mikilvægt að öllum atriðum sé gerð eins góð skil og kostur er til að efla traust á mörkuðunum.
Á Sól*Kol koma margir af helstu sérfræðingum á sínu sviði og fjalla á mannamáli um tækifærin sem felast í markaði kolefniseininga.
Það er ekki tilviljun að málþing uppbyggilegs málefnis, sem þetta, er haldið á Sólheimum. Einkunnarorð Sólheima eiga vel við um málþingið. Þau eru: kærleikur, virðing, sköpunargleði og fagmennska.
Í undirbúningshópnum eru fulltrúar Sólheima, Kolefnisbrúar og Bændasamtaka Íslands.
Að undirbúningi komu:
Hlynur Gauti Sigurðsson, BÍ/Kolefnisbrú
Eiríkur Þorsteinsson, Sólheimar/ Trétækniráðgjöf
Valgeir Fridolf Backman, Sólheimar
Magnús Ólafsson, Sólheimar
Hilmar Vilberg Gylfason, BÍ
Ragnhildur Björk Halldórsdóttir, BÍ
Rakel Eva Sævarsdóttir, Trail sustainabuility
Jóhann Gísl Jóhannson, Kolefnisbrú




















Svipmyndir af málþingi, Myndir: Valgeir Backman
Comments