top of page

Nefndarstarf og Tillögur

Búgreinadeild skógarbænda hjá BÍ heldur Deildarfund (sbr. Aðalfundur) þann 27.febrúar 2025 í Reykjavík.

Stefnt er að því að streyma honum á Youtube og þannig geta allir fylgst með fundi sem vilja.  


Nefndarstörfum er lokið

Fundir Stjórnsýslunefndar voru 4. febrúar og 11. febrúar

Fundur Fagnefndar var 5. febrúar

Fundur Stefnu skógarbænda BÍ var 6. febrúar





STJÓRNSÝSLUNEFND (umsjón: Dagbjartur Bjarnason)

Tillaga 1- Evrópskt samstarf

Tillaga 2- Búnaðarþing, laganefnd BÍ

Tillaga 3- Aukið fjármagn til skógarbænda hjá Landi og skógi

Tillaga 4- Um framgang skógræktarverkefna í loftslagsvegvísi BÍ

Tillaga 5- Framkvæmdaleyfi

Tillaga 6- Verðmætamat og tryggingar skóga

Tillaga 7- Lausnamiðaðar lausagöngur


FAGNEFND (umsjón: Guðmundur Sigurðsson)

Tillaga 8- Samkeyrsla gagna

Tillaga 9- Ræktun gæðaviðar

Tillaga 10- Fjölbreyttari trjágróður


STEFNUMÖRKUN Skóg-BÍ (umsjón Bjarni G. Björgvinsson)

Tillaga 11- Loftslagsvegvísír BÍ

Tillaga 12- Stefna Búgreinadeildar skógarbænda BÍ





Tillögur í óbreyttri mynd (fyrir umræður innan nefnda)


Stjórnsýslunefnd

Með fyrirvara um breytingar


Umsjón: Dagbjartur Bjarnason

Stjórnsýslunefnd

Tillaga 1- Evrópskt samstarf 

Deildarfundur búgreinadeildar skógarbænda haldinn í Reykjavík 27. febrúar 2025 leggur til að formgera samstarf við Samtök skógarbænda í Evrópu.


Greinargerð: Undanfarið ár hefur verið undirbúið formlegt samstarf við Samtök skógarbænda í Evrópu (CEPF). CEPF leggur mikla áherslu á að samstarfið sé hagsælt fyrir alla aðila og fjárhagsleg byrði megi ekki sliga neinn í samstarfinu. Það er því í höndum hverrar þjóðar að leggja til hversu mikið fjármagn hún telur að hún komist af með að leggja til í samstarfinu. Taka þarf með í reikninginn þau ótöldu fjárútlát sem koma til úr af ferðalögum og vinnu við ýmiss konar undirbúning. Smæstu skógarþjóðirnar hafa verið að greiða u.þ.b. 1000 evrur til samtakanna árlega



 

Tillaga 2- Búnaðarþing, laganefnd BÍ  

Deildarfundur búgreinadeildar skógarbænda í BÍ, haldinn í Reykjavík 27. febrúar 2025 samþykkir tillögu frá laganefnd BÍ um breytt utanumhald búgreinaþings. 

 


Tillaga 3- Aukið fjármagn til skógarbænda hjá Landi og skógi 

Endurflutt tillaga frá fyrra ári með uppfærðum tölum að hluta:  


Deildarfundur búgreinadeildar skógarbænda í BÍ, haldinn í Reykjavík 27. febrúar 2025 hvetur stjórn Bændasamtaka Íslands og Land og skóg til að berjast fyrir auknu fjármagni til nytjaskógræktar á lögbýlum til plöntukaupa, skjólbelta, snemmgrisjunar, slóðagerðar, girðinga og annarra tilheyrandi framkvæmda. 


Greinargerð: Á undanförnum árum hefur hlutfall gróðursetninga hjá skógarbændum minnkað verulega í hlutfalli við aðrar gróðursetningar. Vegna hás vaxtastigs hafa framlög til skógræktar á lögbýlum dregist saman að raunvirði undanfarið og í ríkisreikningi eru að auki gert ráð fyrir krónutölulækkun á næstu árum í framlögum til skógræktar á lögbýlum: 

 

2022 Framlög til skógræktar á lögbýlum 458 millj. 

2023 Framlög til skógræktar á lögbýlum 445 millj. 

2024 Framlög til skógræktar á lögbýlum 445 millj. 

2025 Framlög til skógræktar á lögbýlum 444 millj. (nýjar tölur) 

2026 Framlög til skógræktar á lögbýlum 435 millj. 

 

Tryggja þarf vöxt og viðhald skóga á lögbýlum enda gegna þeir mikilvægu hlutverki í bæði kolefnisbindingu, uppbyggingu skógarauðlindar og nýs atvinnuvegar sem unnið hefur verið markvisst að af hálfu hins opinbera um áratuga skeið. Skógarbændur hafa skuldbundið sig til að nýta landið á þennan hátt til 40 ára og ótækt að geta ekki sinnt því verkefni sem skyldi öllum til hagsbóta vegna fjárskorts. Óskir skógarbænda um framkvæmdir (plöntur til gróðursetningar, girðingar, slóðagerð, grisjun o.fl.) voru á þarsíðasta ári um fjórðungi hærri en sem nam framlagi (590 millj. á móti 458 millj.) og útlit fyrir sams konar stöðu nú. 

 

Tillaga 4- Um framgang skógræktarverkefna í loftslagsvegvísi BÍ 

Deildarfundur búgreinadeildar skógarbænda í BÍ, haldinn í Reykjavík 27. febrúar 2025 beinir því til stjórnar BÍ að í komandi búvörusamningum verði unnið að því að tryggja framgang þeirra skógræktarverkefna sem tilgreind eru í nýjum loftslagsvegvísi BÍ. 


Greinargerð: Í nýjum loftslagsvísi BÍ er lögð áhersla á aukna ræktun bændaskóga (e. agroforestry) til bindingar en í því felast nytjaskógar, skjólbeltarækt, beitarskógar eða skjólskógar (LVL.5.i). Bændaskógar geta að auki stutt við aðra þætti eins og bættan aðbúnað (LVL.1.i), aukna uppskeru og bætta nýtingu ræktunarlands (LVL.3.i) og aukna bindingu í jarðvegi með lífkolum (LVL.5.iii) sem dæmi. Skógrækt er eðlilegur hluti af hefðbundnum landbúnaði, enda eina nýtingarleiðin í flokkum landnotkunar í kolefnisútreikningum um landnotkun (LULUCF) sem skilar jákvæðri niðurstöðu, styður að auki við marga þætti í ræktun og getur með tíð og tíma skilað bændum beinum afurðum í formi viðarafurða af ýmsum gerðum. Fjármagn til nytjaskógaræktar í víðum skilningi þarf því að auka, styðja þarf við plöntuframleiðslu, plöntukaup og efla fræðslu. 


 

Tillaga 5- Framkvæmdaleyfi 

Deildarfundur búgreinadeildar skógarbænda í BÍ, haldinn í Reykjavík 27. febrúar 2025 beinir því til stjórnar BÍ að unnið verði að einföldun á afgreiðslu umsókna um framkvæmdaleyfi í skógrækt og skógrækt verði skilgreind sem landbúnaður. 


Greinargerð: Skipulagsmál varðandi skógrækt eru mismunandi í sveitarfélögum. Víða hefur ferlið um framkvæmdaleyfi verið seinlegt og flókið. Það hefur leitt til þess að framkvæmdaleyfum er hafnað eða landeigendur geta ekki orðið við þeim kröfum sem ætlast er til. Þetta er algjörlega óboðlegt á sama tíma og auknar kröfur eru um umhverfisvænni landbúnað og kolefnisbindingu. Bændur vilja mæta kröfunum og horfa í auknum mæli til skógræktar til að kolefnisjafna búskapinn. Það er því óásættanlegt að umsóknir festist í skipulagsferli sveitarfélaga sem vinni þannig gegn jákvæðri þróun í landbúnaði sem skógrækt er. 


 

Tillaga 6- Verðmætamat og tryggingar skóga 

Deildarfundur búgreinadeildar skógarbænda í BÍ, haldinn í Reykjavík 27. febrúar 2025 leggur til að komið verði af stað formlegri vinnu við verðmeta og tryggja skóga. Sú vinna verði leidd af BÍ með aðkomu búgreinadeildar skógarbænda BÍ.  

 

 

 

Tillaga 7- Lausaganga búfjár 

Deildarfundur búgreinadeildar skógarbænda í BÍ, haldinn í Reykjavík 27. febrúar 2025 leggur til við stjórn BÍ og stjórnir annarra búgreinadeilda að kortleggja svæði þar sem ágreinings um ágang búfjár gætir á milli landeiganda. Með kortlagningu er betur hægt að greina hvar og hvers ágreiningsins sætir með það að leiðarljósi að aðstoða við að leysa hann.  


Greinargerð: Tillagan gengur út á að reyna að finna lausnamiðaðar aðgerðir út af ágangi búfjár þar sem Bændasamtökin geta verið leiðandi. Kortlagningin á ekki að vera opinbert skjal og einungis í umsjón Bændasamtakanna, þannig verður ekki farið inn á svið persónuverndar. Vinnan í kjölfarið yrði unnin með stjórn BÍ og/eða viðkomandi stjórnum búgreinadeilda ef þurfa þykir. 









Nefndarstarf Stjórnsýslunefndar  Störfum lokið

4.feb, 17:00 - Dagbjartur, Steini, Hjörtur, Kári, Sigfús, Lilja, Hlynur og Bjarni.

11.feb kl 17:00 - Dagbjartur, Hjörtur, Laufey, Lilja, Jóhann Frímann, Sigfús, Kári og Hlynur


Fagnefnd

Störfum lokið

Tillaga 8-   Samkeyrsla gagna 

Deildarfundur búgreinadeildar skógarbænda í BÍ, haldinn í Reykjavík 27. febrúar 2025 hvetur BÍ til að fá stjórnvöld (bæði ríki og sveitarfélög) til að sameina gagnagrunna stofnanna. Hér er átt við opinber gögn, kortagögn og álíka efni sem gerir ákvörðunartöku um landskipulag skilvirkari og upplýstari. Það myndi flýta fyrir útgáfu framkvæmdaleyfa til skógræktar. Það myndi nýtast öllum hagaðilum, sbr. Land og skógur, Skipulagsstofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Vegagerðin, Minjastofnun, Loftmyndir, HMS, Jörð (RML) o.fl. 

Gögn skógarbænda yrðu þá færð inn í sameiginlegan gagnagrunn.

 

GREINARGERÐ: Með aukinni vinnu og kröfum  varðandi skipulagmál er nauðsynlegt að allar upplýsingar séu aðgengilegar fyrir framkvæmdaraðila og umsagnaraðila. Til að aðgengi upplýsinga verði sem best er mikilvægt að geta náð í sem flestar upplýsingar á einum stað. Mikilvægt er fyrir skógarbændur að hafa gott rafrænt aðgengi yfir framkvæmdir á sinni jörð t.d. varðandi kortagögn og skráningu verkefna á skógræktarjörðinni.

              

Tillaga 9-  Ræktun gæðaviðar

Deildarfundur búgreinadeildar skógarbænda í BÍ, haldinn í Reykjavík 27. febrúar 2025 beinir því til Lands og skógar að endurskoða ráðgjöf um þéttleika nýgróðursetningar þegar um gott skógræktarland á í hlut og leggi þar áherslu á þéttari gróðursetningu þar sem það á við, samanborið við núverandi viðmið.

              

GREINARGERÐ: Hver er tilgangur og markmið nýskógræktar? Undanfarin ár hafa áherslur í ráðgjöf skógræktar viðkomandi ríkisstofnunar (nú Land og skógur) snúist um að gróðursetja æ gisnar í nýgróðursetningu og er nú almennt viðmið LogS að gróðursetja 2500 plöntur/á hektarann fyrir greni, furu og lerki. Öðru máli gegnir um ösp. Það kann að vera hagkvæmt við lakari ræktunaraðstæður og eru þær nokkuð algengar í nýskógrækt. Í betri aðstæðum má þó réttlæta þéttari gróðursetningu. Þannig má segja að mögulega sé verið að hlunnfæra skógræktandann um gæðavið sem annars hefði verið, hefði verið gróðursett þétt því með gisinni gróðursetningu í ríkulegt land má reikna með miklum vexti bæði í árssprota og greinavexti. Þannig má búast við grófkvista viði, sem hefði verið hægt að komast hjá.

 

                   

Tillaga 10-  Fjölbreyttari trjágróður

Deildarfundur búgreinadeildar skógarbænda í BÍ, haldinn í Reykjavík 27. febrúar 2025 hvetur Land og skóga að vera opin fyrir hugmyndum um ræktun fjölbreyttari trjá- og runnategunda í íslenska skóga.

 

GREINARGERÐ: Með aukinni fjölbreytni í skógum má reikna með aukinni myndum búsvæða, plöntu, fugla, dýra og sveppa. Á meðan landshlutabundnu skógræktarverkefnin voru og hétu var nokkuð um að prófa óhefðbundnar plöntutegundir þar sem bóndi vissi af viðkomandi hættu á lifun og/eða vexti. Má þar nefna lauftegundir eins og hengibirki, selju og ávaxtatrjám og barrtegundir eins og þin, degli og jafnvel lífvið. Með blöndun tegunda, bæði við nýgróðursetningu og ekki síður inn í eldri skóga má auðga skógana mikið og er það ekki eingöngu gott fyrir líffjölbreytileikann heldur ekki síður viss skilda Íslendinga í hlýnandi heimi.

Það fellst rekstrarhagkvæmni í að rækta margar plöntur af sömu trjátegund. Bæði eykst þekking á viðkomandi ræktun og hægt er að afkasta meira í nafni fábreytninnar. Að sama skapi getur skarðið við afföll við slíkar aðstæður orðið banabiti gróðrarstöðva. Við íslenskar aðstæður hefur það reynst vel að vinna með áreiðanlegar plöntur sem hafa gefið góða raun yfir áratugina. Það fellst þó viss áhætta í slíkri einræktun eins og dæmin sanna þegar t.d. meindýraplága leggst á eina tegund og má þar nefna jarðyglufaraldur á rússalerki á fyrri öldinni og núverandi ágang birkuþélu og birkikembu á birki Sunnan- og Vestanlands.

 

 

 

Fagnefnd -Unnið 5.feb af: Lokið störfum

Guðmundur, Friðrik, Ásmundur, Agnes, Lilja, Agnes, Dagbjartur, Hjörtur, Hlynur, Laufey.



Umsjón: Bjarni G. Björgvinsson

Stefna Skóg-BÍ

Tillaga 11- Loftslagsvegvísír BÍ


Deildarfundur búgreinadeildar skógarbænda í BÍ, haldinn í Reykjavík 27. febrúar 2025 leggur til að loftlagsvegvísir Bændasamtaka Íslands fari til samþykktar á Búnaðarþingi.

Rökstuðningur: Loftlagsvegvísir bænda er mikilvæg og metnaðarfull stefnumörkun sem snýr að því að efla íslenskan landbúnað. Skógrækt er sannreynd og mælanleg loftslagsaðgerð og eina nýtingarleiðin í flokkum landnotkunar í kolefnisútreikningum um landnotkun (LULUCF) sem skilar jákvæðri niðurstöðu. Eins og kemur fram í LVL.5.i, Aukin ræktun bændaskóga (e. agroforestry), er ætlunin að efla skógrækt til bindingar innan allra búgreina, s.s. með nytjaskógum, skjólbeltarækt, beitarskógum eða skjólskógum. Fyrir utan hreina kolefnisbindingu geta bændaskógar, skjólbelti og skjólskógar stutt við aðra þætti loftslagsvegvísisins eins og LVL.1.i hvað varðar bættan aðbúnað, LVL.3.i um aukna uppskeru og að bæta nýtingu ræktunarlands og LVL.5.iii um aukna bindingu í jarðvegi með lífkolum sem dæmi. Skógrækt af ýmsum toga er nauðsynleg til að markmið um loftslagsaðgerðir náist, hvort sem innan landbúnaðar eða þegar loftslagsskuldbindingar Íslands eru annars vegar.



Tillaga 12- Stefna Búgreinadeildar skógarbænda BÍ

Deildarfundur búgreinadeildar skógarbænda í BÍ, haldinn í Reykjavík 27. febrúar 2025 samþykkir nýja stefnu Búgreinadeildar skógarbænda hjá BÍ.





Stefnunefnd -Unnið 6.feb af:  Störfum lokið

Bjarni, Laufey, Björn Bj, Hjörtur, Friðrik, Jóhann F., Steini, Lilja, Kári




Nánari upplýsingar gefur Hlynur Gauti Sigurðsson, hlynur@bondi.is




Fulltrúar eru:

Björn Bjarndal Jónsson

Ragnheiður Aradóttir

Kári Steinar Karlsson

Jóhanna Róbertsdóttir

Björn Ármann 

Guðmundur Sigurðsson

Bergþóra María Jónsdóttir

Jakob K Kristjánsson Hóli

Lárus Elíasson Rauðsgili

Rúnar Vífilsson Ferstiklu

Bjarni G Björgvinsson

Þorsteinn Pétursson

Lilja Sigurðardóttir

Sigfús Jörgen Oddsson

Vigdís Magnea Sveinbjörnsdóttir

Jóhann Frímann Þórhallsson

Guðmundur Aðalsteinsson

Laufey Leifsdóttir

Þorleifur Þór Þorleifsson

Embla Dóra Björnsdóttir

Aðalsteinn Orri Sigrúnarson

Agnes Þórunn Guðbergsdóttir

Friðrik Jóhannsson

Eymundur Magnússon

Dagbjartur Bjarnason

Guðrún Steinþórsdóttir

Jóhann Gísli Jóhannsson -Gestur af beiðni stjórnar deildarinnar.

 

 

Varfulltrúar eru...

Þórólfur Halldórsson 

Hilmar Gunnlaugsson  






Comentarios


bottom of page