top of page

Samstarf um viðargæðamál

Föstudaginn 22. júní undirrituðu Landssamtök skógareigenda, Landbúnaðarháskólinn, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Skógrætarfélag Reykjavíkur og Skógræktin samkomulag um að vinna saman að því að auka gæði og verðmæti íslenskra viðarafurða.

Markmið samstarfsins er að stuðla að auknum gæðum í ræktun og umhirðu skóga svo afurðir skógarins uppfylli kröfur markaðsins. Ætlunin er að efla fræðslu sem eykur færni þeirra sem vinna í framleiðslu og meðferð viðarafurða í þeim tilgangi að hámarka vermætasköpun og gæði. Vonast er til að fræðslstarfið geri skógareigendum kleift að setja á markaðinn byggingatimbur sem uppfyllir m.a. kröfur byggingareglugerðar. Einnig mun fræðslan svara þeim kröfum sem gilda fyrir hina ýmsu vöruflokka timburs eins og t.d. framleiðslu á efni í vörubretti, kurl, brenni o.s.frv. Landbúnaðarháskólinn mun sjá um fræðslustarfið og fræðsluefnið mun vera framleitt í samvinnu við IÐNÚ.

Samstarfið er þegar hafið og vonast er til að því ljúki í byrjun ársins 2020.

Hjálagðar myndir teknar af Ól.Oddss. eru frá undirskriftinni í Heiðmörk.

Á myndinni eru: aftari röð f.v. Helgi Gíslason, Edda Oddsdóttir, Sæmundur Sveinsson, Hlynur Gauti Sigurðsson og Þorsteinn I. Sigfússon. Á fremi röð eru f.v. Eiríkur Þorsteinnson, Ólafur Oddsson, Björgvin Eggertsson, Gústaf Jarl Viðarsdóttir, Sara Gústafsdóttir, Björn Bjarndal Jónsson.

Þeir sem skrifuðu undir: t.f. v. á mynd merkt eitt eru:

Helgi Gíslason framkvæmdastjóri- Skógræktarfélag Reykjavíkur

Edda Oddsdóttir forstöðumaður á Mógilsá- Skógræktin

Sæmundur Sveinsson rektor- Landbúnaðarháskóli Íslands

Hlynur Gauti Sigurðsson framkvæmdastjóri- Landssamtök skógareigenda

Þorsteinn I. Sigfússon forstjóri- Nýsköpunarmiðstöð Íslands

bottom of page