top of page

Trjáfellingar og grisjun með keðjusög

Trjáfellingar og grisjun með keðjusög - Hveragerði Námskeiðið er öllum opið. Það hentar þeim sem ekkert kunna á keðjusagir og vilja læra á þær. Einnig þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða vilja öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga.

Hámarksfjöldi þátttakenda er 12. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fyrsti dagur er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu. Leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inná grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Komið verður inná hvernig framkvæma eigi einfalda bilanaleit í söginni, ásamt því að læra hefðbundið viðhald, þrif sagar og brý

ningu keðju. Loks verður einn og hálfur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins. Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu. Kennsla: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá LbhÍ Tími: Þri. 22. jan. kl. 9:00-17:30, mið. 23. jan. kl. 9:00-17:30 og fim. 24. jan.. 9:00-16:00 (3x) hjá LbhÍ á Reykjum. Skráningarfrestur er til 16. janúar. Verð: 48.500 kr. (gögn og veitingar innifalin í verði). Bendum á Starfsmenntasjóð bænda sem styrkir félagsmenn í Bændasamtökum Íslands um allt að 33.000kr á hverju ári. Sjá hér.

bottom of page