top of page

Óskað eftir erindum og veggspjöldum á Fagráðstefnu


Fagráðstefna skógræktar 2019

verður haldin á Hallormsstað 3.-4. apríl.

Loftslagsmál verða meginviðfangsefni eða þema ráðstefnunnar að þessu sinni.

Ráðstefnan er að haldin í samstarfi Skógræktarinnar, Landgræðslu ríkisins, Landssamtaka skógareigenda, Landbúnaðarháskóla Íslands, Skógræktarfélags Íslands og Skógfræðingafélags Íslands.

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Öndum léttar – landnotkun og loftslagsmál.

Upphafserindi heldur Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, og erindi tileinkuð yfirskriftinni verða uppistaðan í dagskránni fyrri daginn.

Erindi og veggspjöld óskast – skilafrestur 15. janúar Óskað er eftir erindum og veggspjöldum til kynningar á rannsóknum sem tengjast landnýtingu, loftslagsmálum, skógum, skógrækt eða skyldum málaflokkum og er skilafrestur er til 15. janúar 2019. Hægt er að senda inn tillögu að kynningu hér.

Haft verður samband við höfunda fyrir 1. febrúar.

Fagnefnd Fagráðstefnu 2019 Edda Sigurdís Oddsdóttir Skógræktinni Bjarni D. Sigurðsson Landbúnaðarháskóla Íslands Brynja Hrafnkelsdóttir Skógfræðingafélagi Íslands Einar Gunnarsson Skógræktarfélagi Íslands Hlynur G. Sigurðsson Landssamtökum skógareigenda Þórunn Pétursdóttir Landgræðslu ríkisins


bottom of page