top of page

Forvarnir gegn gróðureldum

Forvarnir gegn gróðureldum Haldið í samstarfi Brunavarna Árnessýslu, Landbúnaðarháskóla Íslands, Skógræktarinnar og Verkís. Námskeiðið er öllum opið, hentar sérstaklega bændum, skógareigendum og öðrum sem eiga land sem eldur getur brunnið á og ógnað verðmætum. Á námskeiðinu verður fjallað um hvaða lög og reglugerðir gilda um brunavarnir á skógarsvæðum og í sumarbústaðalöndum. Kynnt verður vefsíðan www.gróðureldar.is. Skipulag skóga og ræktaðra svæða með tilliti til brunavarna. Varnarsvæði – hvers konar gróður er á slíkum svæðum. Fjallað verður um mikilvægi vega og slóða á ræktuðum svæðum og gott aðgengi að vatni. Er trjágróður miseldfimur? Hvað töpum við miklu kolefni ef hann brennur? Er hægt að tryggja tré/skóg? Sagt verður frá þeim búnaði og aðferðum sem nýtast við að ráða niðurlögum gróðurelda. Næsta slökkvilið, hvaða búnað hefur það til umráða? Eru öll slökkvilið eins útbúin? Hver eru fyrstu viðbrögð við gróðureldum, hvað þarf að vera til staðar í sumarhúsinu/á svæðinu? Skiptir máli hvernig gróður er næst mannvirkjum? Kennsla: Dóra Hjálmarsdóttir Verkís, Björn B Jónsson og Björn Traustason Skógræktinni, Pétur Pétursson og Haukur Grönli Brunavörnum Árnessýslu og Björgvin Örn Eggertsson LbhÍ. Tími: Fös. 8. mars kl. 13:30-17:00 hjá LbhÍ á Reykjum í Ölfusi. Verð: 8.800 kr. (kaffi og gögn innifalin í verði).

bottom of page