Aðalfundur FSA
- Skógarbændur
- May 6
- 2 min read
Aðalfundur FsA
Aðalfundur félags skógarbænda á Austurlandi var haldinn í gamla barnaskólanum á Eiðum 5.maí síðastliðinn. Mættir voru 25 manns. Þorsteinn formaður setti fundinn og fór yfir það sem hafði verið í brennidepli á starfsárinu. Þar á meðal sagði hann frá vel heppnaðri heimsókn í Vallanes þar sem Eymundur og Eygló voru sótt heim. Ábúendur tók á móti gestum í Asparhúsinu og sögðu gestunum frá ræktun, rekstri og ferðaþjónustunni sem þróast hefur í Vallanesi ásamt því að fara í skógargöngu um Orminn, sem er orðið vel þekkt gönguleið fyrir gesti og gangandi. Þar voru einnig skógarhöggsvélar við vinnu og gátu félagsmenn skoðað vinnubrögð þeirra.
Á fundinum var kosið til stjórnar FsA og er hún skipuð sem hér segir. Formaður er Lilja Sigurðardóttir, frá Ormsstöðum, gjaldkeri er Sigfús Jörgen Oddsson, Staffelli, ritari er Loftur Jónsson, Stóra Sandfelli 1 og meðstjórnendur eru Þorsteinn Pétursson, Víðivallagerði og Helgi Bragason, Setbergi. Varamenn í stjórn eru Karl Jóhannsson, Þrepi og Sigbjörn Óli Sævarsson, Rauðholti. Úr stjórninni gengu þau Vigdís Sveinbjörnsdóttir, Egilsstöðum og Kjartan Glúmur Kjartansson, Hóli.
Jóhann Gísli Jóhannsson, sagði frá hugmyndum eflingu Búnaðarsambands Austurlands og talaði um að með samheldnum samtökum allra búgreina á Austurlandi væri hægt að ná meiri árangri heldur en eins og nú er þegar hver búgrein stendur fámenn að sínum málum. Umræðuhópur vinnur að málinu.
Hrefna Jóhannesdóttir sviðsstjóri LOGS fór yfir starfsmannamál LOGS á Austurlandi, gerði einnig grein fyrir úthlutunum ársins og fór yfir framboð skógarplantna en töluverð afföll urðu vegna krefjandi veðurfars á liðnu ári.
Hjörtur Bergmann Jónsson formaður SKÓGBÍ hélt þrumu ræðu þegar hann sagði frá starfi deildarinnar. Hann hvatti skógarbændur á Austurlandi að fjölmenna í samtökin því saman ættum við sterkari rödd á meðal jafningja í Bændasamtökunum.
Aðalskipulagsbreytingar hjá Múlaþingi voru mikið ræddar. Það þykir undarlegt að þrengja eigi að nýrækt skóga með stærðarmörkum upp á 50 hektara á meðan við blasir að Fljótsdalshérað er ein búsældarlegasta sveit landsins og er þar ekki síst fyrir að þakka góðu skógaræktararfi síðustu áratuga. Fundurinn ályktaði um að skila yrði inn kjarngóðri umsögn um málið í von um að stjórnvöld sveitarfélagsins áttuðu sig á mikilvægi skógræktar, einkum í því skyni að styðja og efla búsetu og matvælaframleiðslu í sveitarfélaginu.
Á fundinum bauð kvenfélagið Bláklukkan upp á kótelettur og dýrindis hnallþórur og var langt liðið fram á kvöldið þegar ákveðið var að haldinn yrði auka aðalfundur síðar þar sem ljóst var að meiri tíma þyrfti til að ræða um bæði fjármál og kurlara.
Stjórn FSA




Comments