top of page

Aðalfundur FsS 29.apríl 2023




Aðalfundur Félags skógarbænda á Suðurlandi,

verður laugardaginn 29. apríl kl. 10.00 að Snæfoksstöðum í Grímsnesi.


Dagskrá aðalfundar:


1. Venjuleg aðalfundarstörf


Kjósa á um formann til 3ja ára og 1 meðstjórnanda til 3ja ára og eru það Björn Bjarndal Jónsson og Sigríður J. Sigurfinnsd sem eiga að ganga úr stjórn. Ath. að Sigríður J. Sigurfinnnsdóttir gefur ekki kost á sér í aðalstjórn, en hún gefur kost á sér í varastjórn.

Ragnheiður Aradóttir gefur kost á sér í aðalstjórn.

Björn gefur kost á sér áfram til formennsku.


2. FRÆ TIL FRAMTÍÐAR

Kynning á Framtíðarsýn Félags skógarbænda á Suðurlandi 2023-2050.

Umræður um stefnuna.


3. Ávarp: Sérstakur gestur fundarins er Hrefna Jóhannesdóttir nýráðin sviðsstjóri Skógræktarinnar.

Hrefna sem stýrir umsýslu með skógrækt á lögbýlum á landsvísu og þjónustu við skógarbændur mun fara yfir það helsta sem er á döfinni í skógarþjónustunni.


4. Ávarp: Hlynur Gauti Sigurðsson starfsmaður Bændasamtakanna.


5. Starfið framundan hjá FsS.


6. Umræður og önnur mál


Stutt skógarganga í lok fundar fyrir þá sem vilja.


Leiðin að Snæfoksstöðum;

sjá KORT á ja.is : Skógræktarfélag Árnesinga Snæfoksstöðum, 805 Selfossi






bottom of page