top of page

Aðalfundur FSV 2024

Aðalfundur Félags skógarbænda á Vesturlandi verður haldinn á Hótel Hamri í Borgarfirði þriðjudaginn 16.apríl 2024, fundurinn hefst kl.18:00.


Helstu dagskrárliðir fundarins eru:


· Venjuleg aðalfundarstörf

· Önnur mál



Gestir fundarins verða:

· Hjörtur Bergmann Jónsson, nýr formaður búgreinadeildar skógarbænda BÍ


Kosningar:

Í aðalstjórn eru 3 menn, formaður, ritari og gjaldkeri, kjörnir til eins árs. Varamenn í stjórn og skoðunarmenn reikninga eru kosnir til eins árs í senn.

Stjórnin skiptir með sér verkum að loknum aðalfundi.

Allir félagsmenn eru í kjöri og geta boðið sig fram til stjórnarsetu.

Bergþóra María Jónsdóttir formaður og Laufey B. Hannesdóttir gjaldkeri gefa ekki kost á sér lengur til setu í stjórn.


Að venju verður boðið uppá súpu, brauð og kaffi.

Gott væri að vita ca. fjölda vegna veitinga.

Endilega tilkynnið þátttöku þeir sem það geta annars bara mætið á staðinn. (sigurkarlstef@gmail.com )


Mætum öll og eflum með því félagsstarfið. Takið með ykkur nýja félaga.


Sigurkarl Stefánsson, formaður

Jakob Kristjánsson, formaður

Kristín Magnúsdóttir, gjaldkeri







bottom of page