top of page

Grænni skógar


GRÆNNI SKÓGAR


Haldið í samstarfi við Bændasamtök Íslands, Félög skógarbænda um allt land, Landgræðsluna og Skógræktina Grænni skógar I er námskeiðaröð sem ætluð er skógræktendum og öðrum skógareigendum sem vilja auka við þekkingu sína og árangur í skógrækt.


Námskeiðaröðin tekur fimm annir og þátttakendur taki alls 15 námskeið á þeim tíma eða að jafnaði 3 á hverri önn. Fyrsta námskeiðið verður haldið í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi dagana 22. og 23. sept 2023. Hvert námskeið er skipulagt þannig að kennt er á föstudegi kl. 16-19 og laugardag kl. 9-16.


Námskeiðin eru byggð upp sem blanda af fyrirlestrum, verklegum æfingum og vettvangs- heimsóknum. Að auki verður farið í námsferð innanlands og verður hún kynnt sérstaklega.


Nánari upplýsingar veitir Björgvin Örn Eggertsson, verkefnisstjóri Grænni skóga, í síma 616 0828 eða með tölvupósti á netfangið boe@fsu.is.


Hver önn kostar kr.94.500, skráning er í netfangið gardyrkjuskolinn@fsu.is

skráningarfrestur er til 12. september 2023.


Námskeiðaraðir Grænni skóga hafa verið í gangi frá árinu 2001, fyrst undir stjórn Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum, svo LbhÍ og nú Garðyrkjuskólans – FSu á Reykjum.



Listi yfir námskeið Grænni skóga:


• Frá örfoka landi til skógar

• Girðingar

• Gróðursetning skógarplantna • Lífið í skóginum 1

• Námsferð innanlands

• Ræktun jólatrjáa

• Skipulag, skógarhönnun og skógræktaráætlanir

• Skjólbelti

• Skógar og vistkerfi

• Tegundaval í skógi, skógarplöntur.

• Umhirða ungskóga

• Undirbúningur lands til skógræktar.

• Uppeldi skógarplantna – meðferð og gæðamat

• Verkefni Grænni skógar 1



Graenni_Skogar_H23A_A4
.pdf
Download PDF • 239KB


bottom of page