top of page

HORFT TIL FRAMTÍÐAR!

HORFT TIL FRAMTÍÐAR!

Opnir fundir um skóg- og skjólbeltarækt.


Félag skógareigenda á Suðurlandi (FsS), í samstarfi við Skógræktina, boða til opinna funda um skóg- og skjólbeltarækt á eftirtöldum stöðum:

4. október á Götum í Mýrdal kl 17:00. Fundarstjóri: Hrönn Guðmundsdóttir

4. október á Hótel Klaustri kl 20:00. Fundarstjóri: Sólveig Pálsdóttir.

5. október í Goðalandi Fljótshlíð kl 17:00. Fundarstjóri: Sigríður J. Sigurfinnsdóttir

5. október á Hótel Selfossi kl 20:00. Fundarstjóri: Agnes Geirdal.


Dagskrá fundanna er:

1. Starf skógarbænda á Suðurlandi.

- Hlutverk FsS - Björn Bjarndal

- Að vera skógarbóndi - Ísólfur Gylfi

- Að taka þátt í leshópum um skógrækt og skjólbeltarækt. Skráning hefst í þriggja ára leshóparöð.

- Nýtt félagskerfi skógarbænda - Guðrún Birna Brynjarsdóttir

- Kolefnisbrúin - Hlynur Gauti Sigurðsson



2. Horft til framtíðar í nytja- og skjólbeltarækt.

Sérfræðingar Skógræktarinnar á Suðurlandi ræða um stöðu nýtjaskógræktar og skjólbeltaræktar á Suðurlandi, m.a. með tilliti til bindingar kolefnis í skógum og önnur verkefni Skógræktarinnar.


3. Almennar umræður.

Starfið framundan:

Hvert á hlutverk skógarbænda að vera í grisjun og umhirðu skóga, ásamt úrvinnslu skógarafurða.

Hvers konar verktakavinnu vantar í skjólbelta- og skógrækt? Hver, hvar, hvernig?

Fræðsla fyrir skjólbelta- og skógarbændur.


Fundirnir eru öllum opnir.

Horfum til framtíðar.




bottom of page