top of page

Hvatningarverðlaun skógræktar: KOSNING

Hvatningarverðlaun skógræktar eru veitt árlega til einstaklinga, hópa, fyrirtækja, félaga eða stofnana sem unnið hafa óeigingjarnt starf í þágu skógræktar á Íslandi.


Kallað var eftir tilnefningum fyrir Hvatningaverðlaun skógræktar árið 2024 meðal almennings og bárust hátt á fjórða tug tilnefninga. Dómnefnd valdi úr þrjá aðila til almennrar kosningar. Verðlaunin verða svo veitt á Fagráðstefnu skógræktar 2024, sem haldin verður á Akureyri dagana 20.-21. mars næst komandi.


Hægt er að greiða atkvæði til og með 5. mars.


Kosið er um:


Sigurður Arnarson:

Sigurður hefur verið öflugur í skrifum á fræðandi og áhugaverðum greinum um trjátegundir, skóga og skógrækt og stuðlað þannig að aukinni þekkingu fyrir bæði almenning og fólk innan skógræktargeirans. Auk þess hefur hann verið virkur í umræðu um skógartengd málefni.


Steinar Björgvinsson og Árni Þórólfsson:

Steinar og Árni hafa, með starfi fyrir gróðrarstöðina Þöll og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar, stuðlað að aukinni fjölbreytni trjátegunda almennt hérlendis, uppbyggingu í útivistarskógum, veitt fræðslu til almennings og nema á fagsviði skógræktar og staðið fyrir áhugaverðum viðburðum fyrir fólk á öllum aldri.


Waldorfskólinn:

Waldorfskólinn hefur frá upphafi starfsemi stundað gróðursetningu trjáplantna við skólann. Umhverfisvitund, sjálfbærni og virðing fyrir náttúrunni er samofin námskrá skólans og læra nemendur skólans að hlúa að skóginum ræktaður hefur verið upp við skólann. Með því er verið að rækta upp ræktunarfólk framtíðarinnar.





Á þessu fyrsta ári, 2024, bárust 39 ólíkar en frábærar tilnefningar og um stund hafði nefndin hug á að hafa úrslitakosti fleiri en þrjá. Eftir miklar vangaveltur varð það þó úr að í úrslitum skildu vera þrír fulltrúar verðugir hvatningaverðlaununum þetta árið.


Nefndina skipuðu:Ragnhildur Freysteinsdóttir, Skógræktarfélag ÍslandsHlynur Gauti Sigurðsson, Bændasamtök ÍslandsHrefna Jóhannesdóttir, Land og skógur


Hægt er að kjósa tvisvar á hverri tölvu / síma.


















bottom of page