top of page

Pálmar hlaut Hvatningarverðlaun skógræktar 2025

Hvatningarverðlaun skógræktar 2025 voru veitt við hátíðlega athöfn í Kvikunni, menningarhúsi Grindvíkinga, á Alþjóðlegum degi skóga þann 21. mars.

 

Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru afhent, en þau eru veitt árlega til einstaklinga, hópa, fyrirtækja, félaga eða stofnana sem unnið hafa óeigingjarnt starf í þágu skógræktar á Íslandi. Markmið með afhendingu þeirra er að hvetja skógræktarfólk til áframhaldandi starfa og vekja athygli á því margþætta góða skógarstarfi sem unnið er að um land allt.

 

Almenningi gafst kostur á að tilnefna til aðila til verðlaunanna í upphafi árs á tæpum mánuði höfðu borist 30 fjölbreyttar tilnefningar milli tuttugu aðila. Það kom svo í hlut dómnefndar að lesa yfir tilnefningar og velja þrjá álitlega fulltrúa til að kjósa um. Hátt á fimmta hundrað tóku þátt í kosningunni og það var afdráttarlaust hver hlyti verðlaunin að þessu sinni með helming atkvæða. Pálmar Örn Guðmundsson, formaður Skógræktarfélags Grindavíkur var hlutskarpastur og er vel að titlinum kominn. Auk Pálmars var kosið á milli Atla Jónssonar, frumkvöðuls við skógrækt á Elliðavatnsheiði, fjölskyldufyrirtækisins Skógarafurða ehf., sem er uppvaxandi viðarvinnsla.

 

Athöfnin hófst á ávarpi Ásrúnar Kristinsdóttur, forseta bæjarstjórnar Grindavíkur, sem bauð gesti velkomna og sagði stuttlega frá stöðu mála í bænum. Því næst tók Hjörtur Bergmann Jónsson, formaður Búgreinadeildar skógarbænda hjá BÍ, við og afhenti Pálmari verðlaunin formlega.  Pálmar fékk í verðlaun tvær fallegar skálar úr íslensku birki, sem gerðar voru af handverksmanninum Trausta Tryggvasyni, sem áður var formaður Skógræktarfélags Stykkishólms.

 

Pálmar hefur á eigin spýtur unnið mikilvægt og óeigingjarnt kynningarstarf í þágu skógræktar á Íslandi með Youtube-rás sinni Skógurinn, þar sem hann hefur fjallað um ýmsa þætti skógræktar – einstaka trjátegundir, skóga og skógræktaraðila, svo sem gróðrarstöðvar. Þrátt fyrir að heimabærinn hans og skógar Skógræktarfélags Grindavíkur hafi skemmst vegna eldsumbrotanna á Reykjanesskaga undanfarin ár, þá hefur hann ekki látið deigan síga. Öll vinna við myndböndin er unnin af honum einum án aðkomu annarra. Með sinni einlægu og smitandi ástríðu fyrir skógum og náttúru, kveikir Pálmar áhuga hjá hverjum þeim sem uppgötvar myndböndin hans og er sérlega lofsvert hvað hann hefur verið duglegur að setja enska texta við myndböndin, svo fleiri geti notið þeirra.

 

Að verðlaununum standa Skógræktarfélag Íslands, Land og skógur og Bændasamtök Íslands (búgreinadeild skógarbænda).


Hvatningarverðlaun skógræktar 2025



 Pálmar Örn Guðmundsson með vegleg hvatningarverðlaun skógræktar 2025. Mynd Elisabeth Bernard.
Pálmar Örn Guðmundsson með vegleg hvatningarverðlaun skógræktar 2025. Mynd Elisabeth Bernard.

Comments


bottom of page