Sérðu skóginn fyrir trjánum?
- Skógarbændur
- Jul 9
- 2 min read
Sérðu skóginn fyrir trjánum?
Bændasamtök Íslands (BÍ) leita að öflugum einstaklingi til að leiða spennandi verkefni á sviði sjálfbærni með áherslu á skógrækt. Um er að ræða 100 % starf og er miðað við að ráða sem fyrst eða eftir samkomulagi.
BÍ eru hagsmunasamtök sem hafa það meginmarkmið að bæta afkomu og starfsskilyrði bænda. BÍ styður við sjálfbærni í búrekstri og aðgerðir sem stuðla að loftslagsvænum landbúnaði, m.a. með loftslagsvegvísi bænda. Skógrækt er ein meginstoðunum sem styður við þá vegferð.
Búgreinadeild skógarbænda innan BÍ vinnur að hagsmunamálum þeirra sem stunda skógrækt í atvinnuskyni og stuðlar að nýtingu lands á grundvelli sjálfbærrar þróunar. Deildin framfylgir stefnu skógarbænda og nýtur framlaga skv. Rammasamningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins á milli BÍ og íslenska ríkisins.
Helstu verkefni:
Umsjón með starfi búgreinadeildar skógarbænda BÍ
Vinna að hagsmunamálum skógarbænda gagnvart stjórnvöldum og ytri hagaðilum
Auka virði skógarnytja, efla áframvinnslu hráefnis, vöruþróun og tengd verkefni
Leiða samstarfsverkefni skógarbænda, t.d. málþing, fagráðstefnu og hvatningarverðlaun
Vinna að framvindu og þróun kolefnismarkaða
Kynningarstarf á sviði skógræktar, sjálfbærni og loftslagsmála, t.d. með skýrslugerð, greinarskrifum, umsjón með vefsvæði o.fl.
Vinna að fjáröflun vegna verkefna
Samskipti við erlenda samstarfsaðila og systursamtök
Önnur tilfallandi verkefni á skrifstofu BÍ
Hæfniskröfur og eiginleikar:
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi, t.d. á sviði búfræði, skógfræði, verkfræði eða umhverfisfræði
Reynsla á sviði skógræktar, loftslagsmála eða sjálfbærni er kostur
Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla af félagsstörfum er kostur
Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
Hafa gott vald á íslensku og ensku
Nánari upplýsingar veitir:
Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri BÍ margret@bondi.is
Umsóknarfrestur er til og með 11. ágúst 2025.
Vinsamlega sendið umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi í gegnum Alfreð.
Linkur á Alfred
Bændasamtök Íslands
Borgartún 25
105 Reykjavík
Einnig má senda umsóknir í tölvupósti á margret@bondi.is og orvar@bondi.is.


































Comments