top of page

Trjáfellingar og grisjun með keðjusög - Vaglir

Trjáfellingar og grisjun með keðjusög - Vaglir

Námskeiðið er öllum opið. Það hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fyrsti dagur er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu. Farið verður yfir leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inn á grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Farið verður yfir það hvernig framkvæma eigi einfalda bilanaleit í söginni, ásamt hefðbundnu viðhaldi, þrif sagar og brýningu keðju. Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.


Kennari: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá Garðyrkjuskólanum - FSu (Fjölbrautaskóla Suðurlands).


Tími: Þri. 30. maí kl. 9:00-17:30, mið. 31. maí. kl. 9:00-17:30 og fim. 1. jún. kl. 9:00-16:00 (3x) hjá Skógræktinni á Vöglum (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.


Skráning: Í netfangið gardyrkjuskolinn@fsu.is

Skráningarfrestur er til 22. maí.

Verð: 74.000 kr. (kennsla og gögn innifalin í verði).



Grisjun



bottom of page