top of page

Search Results

622 items found for ""

  • Fagráðstefna skógræktar 2024

    SKÓGARAUÐLINDIN- INNVIÐIR OG SKIPULAG

  • Vegferð viðar og vinnslu

    Vegferð viðar og vinnslu Skógrækt er langtímaverkefni. Við tölum ekki í áratugum heldur árhundruðum, sem er ekki langur tími í skógrækt. Fyrstu tré til viðarvinnslu eru alla jafna um 50 ára gömul. Plöntur verða að trjám, skógar verða til og fjöllin eru farin að hverfa á bak við trén. Viðarafurðir sem koma úr skógunum eru orðnar að markaðsvöru og núna á næstur árum mannvirkjum. Þegar við hófum skógrækt fyrir um það bil 70 árum var markmiðið að sanna að tré til vinnslu gætu vaxið hérlendis. Nýr skógur gæti klætt landið og bæta fyrir það hvernig við eyddum landnámsskógunum með fjárbeit og kolavinnslu, sem var veruleg þörf þegar litla ísöldin gekk yfir. Útgerðarbóndi frá Vestmannaeyjum hafði það að orði þegar hann var uppi í Heiðmörk að gróðursetja tré 1954 „Ég vil gjarnan fá þennan mann í vinnu við að selja fisk sem gat sannfært menn um að hægt væri að rækta hér skóg í þessum mosa og hrauni“. Þessi mikli viðskiptamaður hafði trú á því sem við vorum að gera og vildi gjarnan nýta þekkingu þess manns í viðskiptum. Nú er Skógræktarfélag Reykjavíkur að fella þessi tré og nýta í timburvinnslu. Timburvinnsla á trjám, sem voru ræktuð fyrir 40-70 árum og nú er verið að fella í fyrstu grisjun, er staðreynd og er timbrið nýtt í klæðningar, eldivið, kurl, kindikögla, brettaefni, gólfefni, pallaefni, útivistgögn s.s. borð og bekki o.s.frv. Nýr áfangi er í augsýn. Nú mun væntanlega með vorinu hefjast framleiðsla á íslensku timbri fyrir burðarvirki. Sem sagt efni sem er CE merkt og þar með vottað til framleiðslu í burðarvirki þar sem timbur er notað. Við höfum nú þegar framleitt mannvirki úr íslenskum viði, sem þurfti vottun, en það var nýleg göngubrú yfir Þjórsá. Að þeirri vottun og framleiðslu sameinuðust Límtré Flúðum, Norsk Treteknik og Trétækniráðgjöf slf. CE merking á íslensku timbri kallar á að hönnuðir horfi á það með sömu augum og útgerðarbóndinn í Eyjum og hafi trú á því fyrir þær byggingar sem þeir eru að hanna um leið og þeir horfa til allra þeirra vinnu sem hefur verið lögð í þessa ræktun. Skógrækt er langtímaverkefni þar sem við tölum um 50-100 ár til að ná árangri. Þetta timbur sem við erum að byrja að nota er úr grisjun á 50-70 ára gömlum trjám. Fyrir rúmu ári síðan vannst stór áfangi þegar íslenskt timbur varð gjaldgengt í Svansvottaðar byggingar, en með CE merkingu verður íslenskur viður enn eftirsóttari. Í upphafi þessa árs fékkst veittur styrkur úr Aski mannvirkjarannsóknarsjóði til að vinna veg og vanda að CE vottun fyrir íslenskt timbur. Bændasamtök Íslands veittu styrknum viðtöku ásamt Trétækniráðgjöf slf. en að baki umsókninni stóðu einnig Skógræktin og Skógræktarfélag Íslands. Skógrækt á Íslandi hefur þau forréttindi að hún er ung og við höfum þekkingu á því hvaðan hver planta er komin. Því er tiltölulega auðvelt fyrir okkur að halda utan um uppruna hvers trés sem er fellt og tryggja sjálfbærni skóga hér á landi. FSC vottun kemur síðar enda skilyrði þegar við tölum um útflutning á trjávörum. Trú okkar Íslendinga á því að hér yxu skógar sem mundi skila viðarafurðum óx þegar Viðarmiðlun Skógræktarinnar var stofnuð í júlí 1996 og hóf sölu á trjávið. Fyrirtæki eins og Byko kom inn í þetta samstarf og var Jón Helgi Guðmundsson forstjóri þar í forystu. Þjóðarvakning varð og má nefna klæðningu á Salnum í Kópavogi sem dæmi. Arkitektar sýndu mikinn áhuga á þessu nýja íslenska byggingarefni og voru fleiri vörur og byggingar búnar til úr íslenskum efnisviði. Um miðja öld voru trjáplöntur aðallega framleiddar af Skógræktarfélagi Reykjavíkur og skógræktarfélögunum.  Þrjár stærstu gróðurstöðvar Skógræktar ríkisins voru á Tumastöðum, Vöglum og Hallormsstað. Plönturnar dreifðust í nærumhverfið s.s. Haukadal, Þjósárdal, Vaglaskóg, Hallormstaðaskóg og víðar. Skógræktarfélag Reykjavíkur og Skógræktarfélag Eyfirðinga framleiddu plöntur fyrir Öskjuhlíð, Heiðmörk, Kjarnaskóg og nánasta umhverfi. Þær trjátegundir sem mest var gróðursett á þessum árum, og eru að koma til vinnslu núna, voru sitkagreni, lerki, stafafura og alaskaösp. Aðrar tegundir voru gróðursettar til skrauts eins og birki, víðitegundir, bergfura, skógarfura, rauðgreni og fleiri. Nú, þegar vaxtarskilyrði hafa víða batnað fyrir viðkvæmar tegundir, mætti vel hugsa sér að koma upp laufskógarlundum með eins og t.d. með reyniviði, sem er okkar harðviður, og fleiri tegundum í þeim dúr t.d. eik, hlyn og ask. Áður en lengra er haldið er rétt að útlista hvaða trjátegundum var plantað á þessu tímabili þ.e.a.s. fyrir 40 til 70 árum. Við tökum fyrir skógsvæðin hér á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Austurlandi og Norðurlandi. Trjátegundirnar sem verða nýttar frá þessum svæðum eru timbur úr trjám af ætt berfrævinga og eru trjátegundir sem vaxa í Norður-Ameríku og Norðaustur- Evrópu eins og skilgreint er í staðlinum ÍST EN 1912. (Skógarfura – Pinus sylvestris.  Stafafura - Pinus contorta.  Rauðgreni – Picea abies.  Sitkagreni - Picea sitchensis.  Evrópulerki - Larix decidua.  Síberíulerki - Larix sibirica.  Rússalerki - Larix sukaczewii). Í nánustu framtíð má reikna með að Alaskaöspin -Populus triccoarpa verði nýtt sem burðarviður. Skógarauðlindin fer stækkandi. Í þjóðskógunum eru elstu tré landsins að finna og hefur grisjunarviður þeirra skóga verið nýttur af mætti yfir áratugina. Skógar skógræktarfélaganna hafa einni vaxið vel og nú ber mjög á uppgangi hjá nokkrum félögum í viðarvinnslu. Má þar helst nefna Skógræktarfélög Reykjavíkur, Eyfirðinga og Árnesinga en nokkur til viðbótar eru líkleg til leiks innan fárra ára. Síðastir í upptalningunni en alls ekki sístir koma skógarbændur. Þó þeirra skógar séu mun yngri en fyrrgreindu frumkvöðlanna tveggja er samanlagt flatarmál þeirra skóga mest. Skógar bænda stækka vel og jafnvel betur en þeir sem eldri eru. Kemur það m.a. til út af aukinni þekkingu og reynslu sem frumkvöðlarnir hafa öðlast. Val á efniviði hefur mikið að segja um árangur skógræktarinnar. Plöntu- og kvæmaval til gróðursetningar síðustu ára eru alla jafna fyrsta flokks með tilliti til vaxtar og gæða. Reikna má með miklu framboði viðar frá skógarbændum til vinnslu á næsta áratug eða svo. Þörfin fyrir grisjun er víða orðin aðkallandi. Það stefnir því í að innan fárra ára verður mjög mikil aukning á framboði á íslenskum viði. Við þetta má bæta að verðlag á viði er í hæstu hæðum á heimsvísu um þessar mundir og gefur það tilefni til að íslenskt timbur sé ekki eingöngu samanburðarhæft í gæðum en ekki síður verði. Ljóst er að íslenskur viður er samanburðarhæfur við innfluttan burðarvið og innan skamms verður það fyrir allra augum með innleiðingu CE merkingar. Íslensku skógarnir hafa sannað sig. Okkur er því ekkert að vanbúnaði við að byggja úr heimafengnum efniviði. Höfundar: Eiríkur Þorsteinsson Ólafur Sæmundsen Hlynur Gauti Sigurðsson Var fyrst birt í Bændablaðinu 5. tölublað 7. mars 2024 bls 42

  • Ræturnar bjarga heiminum

    Á þriðjudagskvöldið (5.mars 2024) var franskur sjónvapsþáttur á RÚV sem fjallaði um rætur. Þar á Ísland stórt hlutverk. Mjög gott sjónvarpsefni fyrir ykkur sem viljið fræðast um djúpar rætur. https://www.ruv.is/sjonvarp/dagskra/ruv/2024-03-05/5358104

  • "Lausaganga", Orðskýring

    LAUSAGANGA Orðið kom fyrst fyrir í lögum um búfjárhald árið 1991 (og er því nánast nýyrði og því hjákátlegt þegar því er flaggað sem sögulegri heimild kindaeigenda). En hvað þýðir orðið? Lagalega þá þýðir það búfé sem er í sínu heimalandi, án þess að vera girt þar inni. Ef slíkt búfé í "lausagöngu" fer úr sínu heimalandi í annað heimaland, er það ekki lengur í lausagöngu, heldur verður flækingsfé eða ágangsfé. Búfé á afrétti er ekki í lausagöngu, heldur er einfaldlega búfé á afrétti (eins og það hefur verið frá Þjóðveldisöld). Mynd með frétt kemur af áhugaverðri Nísjálendksri heimasíðu um betri girðingarverklag. https://thisnzlife.co.nz/19-tips-better-fencing/

  • Mold ert þú

    Í Mold ert þú er útskýrt af hverju áhrif frosts á náttúruna eru meiri hérlendis en þekkist annars staðar. Hinum einstöku sandauðnum og áhrifum þeirra á öll vistkerfi landsins er einnig gefinn sérstakur gaumur. Leitast er við að opna augu lesandans fyrir eðli og ástandi vistkerfa – þar sem moldin gegnir lykilhlutverki ásamt gróðurþáttum. Ólafur Arnalds vitir verðlaunum viðurkenningu. https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2024-03-06-olafur-gestur-arnalds-hlytur-vidurkenningu-hagthenkis-406686?fbclid=IwAR2W64Vx6uCn2BaI2LFb6ldoB3xmI5tOdygIsZwsKlz3dSt23THSoDoCELY

  • Meiri skóg í stjórn BÍ

    Framboð til stjónar BÍ rennur út á miðnætti fimmtudagsins 7.mars nk. Frábært væri skógarbændur gerðu meira vart við sig í stjórninni https://www.bondi.is/frettir/framlengdur-frambodsfrestur Í könnun sem lögð var fyrir skógarbændur í janúar var áberandi að fólk vildi meiri samvinnu skógarbænda við BÍ, sem sagt efla starf skógarbænda innan BÍ. Mögulega hafa einhver ykkar áhuga á að taka þátt í því starfi, í stjórn BÍ.

  • Grænni skógar 1 -skráning hafin

    Þá er námskeiðaröð Grænni skóga I klár í auglýsingu. Byrjum í september 2024 og verðum í 5 annir.

  • KOSNINGU AÐ LJÚKA!!! Hvatningarverðlaun skógræktar

    KOSNINGU LÝKUR Á MORGUN 5.MARS Kosið er um: Sigurður Arnarson: Sigurður hefur verið öflugur í skrifum á fræðandi og áhugaverðum greinum um trjátegundir, skóga og skógrækt og stuðlað þannig að aukinni þekkingu fyrir bæði almenning og fólk innan skógræktargeirans. Auk þess hefur hann verið virkur í umræðu um skógartengd málefni. Steinar Björgvinsson og Árni Þórólfsson: Steinar og Árni hafa, með starfi fyrir gróðrarstöðina Þöll og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar, stuðlað að aukinni fjölbreytni trjátegunda almennt hérlendis, uppbyggingu í útivistarskógum, veitt fræðslu til almennings og nema á fagsviði skógræktar og staðið fyrir áhugaverðum viðburðum fyrir fólk á öllum aldri. Waldorfskólinn: Waldorfskólinn hefur frá upphafi starfsemi stundað gróðursetningu trjáplantna við skólann. Umhverfisvitund, sjálfbærni og virðing fyrir náttúrunni er samofin námskrá skólans og læra nemendur skólans að hlúa að skóginum ræktaður hefur verið upp við skólann. Með því er verið að rækta upp ræktunarfólk framtíðarinnar. Hægt er að kjósa tvisvar á hverri tölvu / síma.

  • Trausi Hjálmarsson nýr formaður BÍ

    Á vefsíðu BÍ er greint frá úrslitum kosninga til formanns sem stóðu yfir um helgina. Nánar er greint frá úrslitunum hér. https://www.bondi.is/frettir/urslit-kosninga-i-kjori-til-formanns-baendasamtaka-islands Samkvæmt samþykktum BÍ munu formleg formannsskipti eiga sér stað á komandi búnaðarþingi og tekur nýr formaður og ný stjórn til starfa föstudaginn 15.mars 2024.

  • Í dag er kosið um formann BÍ

    Í dag og á morgun er rafræn kosning um formann BÍ Gunnar Þorgeirsson og Trausti Hjálmarsson eru í fraboði. Sjá nánar: bondi.is https://www.bondi.is/frettir/rafraen-kosning-formanns-baendasamtaka-islands-er-hafin-og-verdur-virk-til-kl-2359-thann-2-mars-n-k

  • Tilnefnum tilnefnum bændur með skóg!!!

    Óskað er eftir tilnefningum til landbúnaðarverðlauna sem matvælaráðherra veitir árlega í tengslum við Búnaðarþing. Tilnefningafrestur er til 7.mars 2024 Sjá nánar á frétt Matvælaráðuneytis Stjórnarráðið | Óskað eftir tilnefningum fyrir landbúnaðarverðlaun matvælaráðuneytisins 2024 (stjornarradid.is) Í fyrra (2023) veittur Þorgrímur og Helga, skógarbændur með meiru á Erpsstöðum í Dölum, viðurkenningunni viðtökur á Búnaðarþingi.

  • Rafræn kosning formanns BÍ 1.mars

    Kæru skógarbændur í BÍ Í búgreinadeild skógarbænda eru skráðir 177 félagsmenn. Í dag, 22.febrúar 2024, rann út frestur við að skila inn framboði til formanns. Tveir hafa boðið sig fram. Sitjandi formaður: Gunnar Þorgeirsson, garðyrkjubóndi á Árbakka Hefur verið formaður BÍ í 4 ár, var áður formaður Garðyrkjubænda. Gunnar er mikill áhugamaður um skógrækt. Mótframboð: Trausti Hjálmarsson, sauðfjárbóndi í Austurhlíð Var formaður búgreinadeildar sauðfjárbænda frá 2022-2024 og sat í stjórn BÍ. Trausti er mikill áhugamaður um skógrækt. Nú eru rúm vika í kosningar. Þær fara fram rafrænt á kosningaveg BI og standa yfir í tvo daga frá föstudagi 1.mars til laugardags 2.mars. Sjá nánar á bondi.is Stjórn búgreinadeildar skógarbænda hvetur skógarbændur eindreigið að nýti sér kosningarétt sinn og kjósi í rafrænni kosningu dagana 1.-2.mars. https://www.bondi.is/um-bi/bunadarthing/frambod-til-stjornar-2024 Hægt er að kynna sér frambjóðendurna betur í Bændablaðinu sem og hefur hróður þeirra borist vísa um ljósvakana. https://www.bbl.is/frettir/formannsslagur-i-vaendum

bottom of page